Shownotes
Þorsteinn J. fer til fundar við söguna, rétt fyrir húshornið og upp Sólvallagötuna. Eyþór Árnason segir frá því hvers vegna hann fékk áhuga á örlögum Reynistaðabræðra 1780. „En þessi saga er alls ekki um það sem gerðist“ segir Þorsteinn. „Þessi saga er um hvaða áhrif þessi hræðilegi atburður hafði á fjölskyldu þína Eyþór, og þig sjálfan.“